Persónuverndarstefna
Persónuverndarstefna CLF á Íslandi
Starf CLF á Íslandi byggir á trausti og því leggjum við mikla áherslu á að gæta upplýsinganna þinna með öruggum og ábyrgum hætti. Í persónuverndarstefnu okkar hér að neðan má lesa um hvernig og hvers vegna við öflum, notum og geymum persónuupplýsingar.
Með því að veita okkur persónuupplýsingar, til dæmis í gegnum síma, tölvupóst, heimasíðu eða samfélagsmiðla, gefur þú samþykki þitt fyrir söfnun og notkun á upplýsingunum í samræmi við þessa stefnu.
Ef þú hefur einhverjar spurningar eða athugasemdir varðandi meðferð persónuupplýsinga hvetjum við þig til að hafa samband við okkur með því að senda tölvupóst á clf@clf.is.
Tilgangur og markmið
CLF á Íslandi, kt. 560404-3360, leggur ríka áhersla á að tryggja áreiðanleika, trúnað og öryggi persónuupplýsinga sem félagið vinnur.
Persónuverndarstefnu þessari er ætlað að upplýsa þig um vinnslu CLF á Íslandi á persónuupplýsingum, þ.á.m. hvaða persónuupplýsingum félagið safnar, og með hvaða hætti félagið nýtir slíkar persónuupplýsingar.
Hvaða persónuupplýsingar vinnur CLF á Íslandi?
Vefverslun
CLF á Íslandi heldur úti vefverslun þar sem hægt er að styðja félagið með kaupum á ýmsu handverki. Þegar félagið afgreiðir kaup einstaklinga á vörum til styrktar CLF á Íslandi vinnur félagið almennt eftirfarandi persónuupplýsingar um stuðningsaðila:
- samskiptaupplýsingar, þ.e. nafn, netfang, heimilisfang og sími
- kennitala
- greiðsluupplýsingar
Óskað er eftir netfangi svo hægt sé að senda stuðningsaðilum rafræna kvittun og heimilisfangi til að senda vöruna til viðkomandi. Þá er óskað eftir kennitölu í þeim tilgangi að miðla nauðsynlegum upplýsingum um framlag til Skattsins, í samræmi við ákvæði tekjuskattslaga, enda koma slík framlög til frádráttar tekjuskatti.
Þá kann CLF á Íslandi að nota tengiliðaupplýsingar til að senda stuðningsaðilum sem verslað hafa hjá CLF á Íslandi upplýsingar um starf félagsins, eða til að bjóða þeim að styðja félagið. Stuðningsaðilar geta ávallt afþakkað tölvupósta frá félaginu með því að smella á tengil sem birtist neðst í viðkomandi pósti og afþakkað símtöl með því að gefa það til kynna í viðkomandi símtali eða með því að senda tölvupóst á clf@clf.is.
Frjáls framlög og mánaðarlegir styrkir
CLF á Íslandi tekur við frjálsum framlögum frá einstaklingum. Í tengslum við slíka styrki kann félagið að safna eftirfarandi upplýsingum um stuðningsaðila:
- samskiptaupplýsingar, þ.e. nafn, netfang, heimilisfang og sími
- kennitala
- greiðsluupplýsingar
Óskað er eftir kennitölu og greiðsluupplýsingum svo að hægt sé að taka við mánaðarlegum styrkjum. Samskiptaupplýsingum er safnað til að veita upplýsingar um það hvernig styrkurinn nýtist, til að færa fréttir af starfinu og til þess að geta haft samband við stuðningsaðila ef þörf er á vegna afgreiðslu styrks.
Með hverjum deilum við upplýsingum?
CLF á Íslandi ýtir þjónustu frá samstarfsaðilum og þjónustuveitendum til að geyma gögn og persónuupplýsingar með öruggum hætti. Hér er til dæmis átt við hýsingu á vefsíðu og vefverslun, greiðsluþjónustu, og þjónustu við gagnagrunn.
Þessir samstarfsaðilar munu ekki nota upplýsingarnar þínar í eigin tilgangi. Við leggjum áherslu á að tryggja öryggi upplýsinga þinna og við munum aldrei selja upplýsingar þínar til annarra stofnana eða fyrirtækja.
Við notfærum okkur þjónustu Facebook og Instagram fyrir stafræna markaðssetningu. Ef þú vilt ekki sjá sérsniðnar auglýsingar frá okkur á samfélagsmiðlum ráðleggjum við þér að fylgja leiðbeiningum viðkomandi vefsíðna eða forrita.
Ef þú hefur gefið upp greiðsluupplýsingar, s.s. kreditkortanúmer eða númer bankareiknings, til þess að styðja starf CLF á Íslandi með kaupum í netverslun eða frjálsum framlögum, munum við miðla þeim upplýsingum til banka eða kortafyrirtækis sem annast greiðslumiðlun til þess að ganga frá greiðslu þinni. Með því að veita okkur þessar greiðsluupplýsingar gefur þú samþykki þitt fyrir því.
Hversu lengi geymum við upplýsingarnar þínar?
Við geymum persónuupplýsingarnar þínar eins lengi og nauðsynlegt er fyrir starfsemi CLF á Íslandi og samskipti okkar við stuðningsaðila. Við geymum upplýsingar um þig til þess að geta veitt þér þá þjónustu, vörur og upplýsingar sem þú hefur beðið um, til þess að eiga viðeigandi samskipti við þig. Þú getur alltaf beðið um að slíkum samskiptum sé hætt eða upplýsingum eytt.
Þú getur óskað eftir afriti af þeim persónuupplýsingum sem við geymum um þig á grundvelli 18. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Vinsamlegast sendu lýsingu á þeim upplýsingum sem þú vilt óska eftir ásamt staðfestingu á auðkenni þínu á clf@clf.is.
Breyta samskiptum
Við viljum að þú sért ánægð/ur með samskipti þín við okkur. Ef þú vilt breyta því hvernig þú heyrir frá okkur eða uppfæra upplýsingar um þig hvetjum við þig til að hafa samband. Þú getur breytt því hvernig við höfum samband við þig á eftirfarandi hátt:
- Með því að smella á „afskrá af póstlista“ í tölvupósti frá okkur og hætta að fá tölvupósta;
- Með því að senda tölvupóst á clf@clf.is
Ef þú tilkynnir okkur að þú viljir ekki lengur heyra frá okkur í markaðslegum tilgangi skaltu hafa í huga að við gætum samt haft samband við þig vegna annarra atriða, svo sem vegna framlaga sem þú gefur CLF á Íslandi eða til að senda þér upplýsingar sem þú hefur óskað eftir.
Breytingar á stefnunni
Persónuverndarstefna CLF á Íslandi var síðast uppfærð í október 2023. Við gætum gert breytingar á stefnunni eftir þörfum og við hvetjum þig því til að lesa hana reglulega. Uppfærð stefna gildir frá því að hún er birt á síðunni og stýrir meðferð persónuupplýsinga framvegis.